Fotbolti.net
06.04.26 - 16:13
Kári Snorrason

Byrjunarlið KR og Vals: Dagur Orri og Frederik byrja - Jónatan Ingi á bekknum

Frederik Schram byrjar í marki Vals.

Frederik Schram byrjar í marki Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
KR og Valur eigast við í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikar hefjast klukkan 17:00 og er leikurinn í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net og í beinni útsendingu á RÚV.
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
Búið er að opinbera byrjunarliðin. Óskar Hrafn byrjar áfram með Arnar Frey Ólafsson í markinu. Þeir Michael Akoto og Finnur Tómas eru þar fyrir framan.

Það vekur athygli að Hrafn Tómasson er í byrjunarliði KR en hann var á láni hjá Þrótti síðasta sumar. Þeir Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason eru jafnframt báðir í byrjunarliði Vesturbæinga.

Hermann Hreiðarsson byrjar með Frederik Schram í markinu en hann hefur verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu.

Þá byrjar Dagur Orri Garðarsson fremstur, en hann gekk til liðs við félagið frá HK í vetur. Jónatan Ingi Jónsson byrjar á bekknum en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Byrjunarlið KR

Arnar Freyr Ólafsson, Michael Osei Akoto, Finnur Tómas Pálmason, Eiður Gauti Sæbjörnsson, Aron Sigurðarson (fyrirliði), Luke Morgan Conrad Rae, Amin Cosic, Gabríel Hrannar Eyjólfsson, Ástbjörn Þórðarson, Arnór Ingvi Traustason, Hrafn Tómasson

Byrjunarlið Valur

Frederik August Albrecht Schram, Hörður Ingi Gunnarsson, Markus Lund Nakkim, Bjarni Mark Antonsson, Tryggvi Hrafn Haraldsson (fyrirliði), Hólmar Örn Eyjólfsson (fyrirliði), Lúkas Logi Heimisson, Dagur Orri Garðarsson, Jakob Franz Pálsson, Birkir Heimisson, Adam Ægir Pálsson

Hrafn Tómasson er í byrjunarliði KR.

Hrafn Tómasson er í byrjunarliði KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi hefur verið að glíma við meiðsli.

Jónatan Ingi hefur verið að glíma við meiðsli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.