Pálmi Rafn: Atli bjargaði þessu fyrir okkur
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var mjög mikilvægt. Heilt yfir góður leikur, liðið spilaði vel.“ Sagði Pálmi Rafn sem var valinn maður leiksins í leik Stjörnunnar og KR í kvöld.
Pálmi viðurkenndi að þeir röndóttu hefðu sett þennan leik svolítið öðruvísi upp heldur en leikinn gegn Val í 1. umferð.
„Við erum með plan fyrir hvern leik. Við ætluðum að halda boltanum meira en við gerðum í síðasta leik og það gekk bara frekar vel á stórum köflum í leiknum og skilaði okkur sigri.“
Þegar Pálmi var spurður hvort að annað mark þeirra KR-inga hafi ekki komið á mjög mikilvægu augnabliki fyrir liðið andlega hafði Pálmi þetta að segja:
„Jú, ég er sammála því. Þetta var helvíti mikilvægt mark út af því að við vorum búnir að vera betri í fyrri hálfleiknum og spila vel og það er helvíti gott að fara inn í hálfleik með forystuna.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.