Fotbolti.net
17.07.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkasta lið 11. umferðar - Sex liða fallbarátta

Fram er búið að vinna tvo leiki í röð.

Fram er búið að vinna tvo leiki í röð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram vann sinn annan sigur í röð í Bestu deild kvenna, 0-1 gegn Þrótti í Laugardalnum. Aðra umferðina í röð er Anton Ingi Rúnarsson þjálfari umferðarinnar.

Ashley Brown Orkus, markvörður Fram, var maður leiksins og Taylor Marie Hamlett er heldur betur búin að finna markaskóna.
Sterkasta lið 10. umferðar - Eitt það óvæntasta í sumar
TENGT EFNI

Sterkasta lið 10. umferðar - Eitt það óvæntasta í sumar



Það er í raun hægt að færa rök fyrir því að núna sé sex liða fallbarátta í Bestu deild kvenna þar sem það munar aðeins fjórum stigum á liðinu í fimmta sæti, Þrótti, og botnliðinu, sem er Þór/KA.

FH heldur í toppsætið eftir 6-1 sigur gegn Grindavík/Njarðvík í gær. Ída Marín Hermannsdóttir er í sterkasta liði umferðarinnar í sjötta sinn í sumar og Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir heldur áfram að spila frábærlega. Helena Errington lék mjög vel með FH í gær og var maður leiksins.

Breiðablik er í öðru sæti en þær unnu 4-1 sigur á Víkingi þar sem Líf Joostdóttir van Bemmel fór fyrir sínu liði. Kristín Dís Árnadóttir lék þá vel í vörninni hjá Blikum en stærsta augnablik leiksins var þegar hin 14 ára gamla Ólöf Margrét Marvinsdóttir fyrir Blika.

Stjarnan vann Þór/KA, 3-2, og heldur í við toppliðin en þar átti Hulda Hrund Arnarsdóttir mjög góða innkomu. Bríet Jóhannsdóttir átti góðan leik í Þór/KA en hún og Hulda spila sem sóknarsinnaðir bakverðir í sterkasta liði umferðarinnar.

Þá vann ÍBV 2-1 sigur á Val þar sem Allison Grace Lowrey og Olga Sevcova léku mjög vel.

Hlaðvarpsþátturinn Uppbótartíminn er í smá sumarfríi en snýr til baka með látum eftir helgi.
Ída Marín er í sterkasta liðinu í sjötta sinn í sumar.

Ída Marín er í sterkasta liðinu í sjötta sinn í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hulda Hrund átti sterka innkomu fyrir Stjörnuna.

Hulda Hrund átti sterka innkomu fyrir Stjörnuna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líf lék mjög vel í sigri Breiðabliks.

Líf lék mjög vel í sigri Breiðabliks.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1FH11+2126
2Breiðablik11+1624
3Stjarnan11+921
4ÍBV11020
5Þróttur R.11-313
6Grindavík/Njarðvík11-912
7Valur11-410
8Víkingur R.11-1110
9Fram11-1310
10Þór/KA11-69
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.