Rafael Leao og Ivan Roman fengu rauða spjaldið fyrir atvik sem átti sér stað undir lok fyrri hálfleiks
Portúgal marði 2-1 sigur á Síle í vináttulandsleik í Oeiras, sem er á stórborgarsvæði Lissabon í Portúgal.
Cristiano Ronaldo var á sínum stað í fremstu víglínu en tókst ekki að komast á blað.
Tvö rauð spjöld fóru á loft undir lok fyrri hálfleiksins. Stympingar áttu sér stað við hornfánann þar sem þeir Rafael Leao og Ivan Roman tókust á. Dómarinn ákvað að gefa báðum rauða spjaldið.
Ivan Roman or Chile and Rafael Leao of Portugal both got red card for this ????! #PORCHI pic.twitter.com/OKTLsSdS4O
— The Final Whistle (@Rufus_45) June 6, 2026
Í síðari hálfleiknum komu mörkin. Goncalo Guedes kom inn á í stað Ronaldo og skoraði tólf mínútum síðar áður en Bruno Fernandes bætti við öðru með glæsilegu skoti fyrir utan teig áður en Lucas Cepeda minnkaði muninn undir leikslok.
Góður 2-1 sigur hjá Portúgal sem spilar við Nígeríu á miðvikudag, en það verður síðasti leikur Portúgals fyrir HM.
BRUNO FERNANDES WHAT A GOAL! ???? pic.twitter.com/SWXkKFxvSJ
— TC (@totalcristiano) June 6, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
