Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum.
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
Siggi Lár: Gaman að vera í Laugardalnum
Horfðu á Besta spjallið - Staða mála skoðuð í landsleikjahlénu
Pablo Punyed sáttur: Vona að ég sjálfur geti spilað minna og minna í sumar
Gaui Lýðs um uppganginn á Ásvöllum: Setjum stefnuna á að komast í efstu deild
Nemanja Pjevic: Þegar maður bíður eftir strætó koma þeir allt í einu þrír í einu
Hrafn Guðmunds: Ég þarf að halda þessu áfram
Davíð Smári: Höfum verið með óþægilega líkamstjáningu
Svekktur Nenad: Tek þetta á mig
Magnús Már súr: Það var samt ekki það sem fór með okkur í dag
Gunnari Heiðari fannst ekkert eðlilega gaman að horfa á HK liðið
Glódís: Þetta eru hræðilegar reglur
Stórt fyrir Söndru Maríu - „Hún elskar að vera hérna"
„Var að reka á eftir hlutum sem hún á ekkert að vera að reka á eftir“
Thelma eftir fyrsta landsliðsmarkið: Ég er smá fúl samt
banner
   lau 06. júní 2026 17:11
Ívar Björgvinsson
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir tók á móti Þrótti í 8. umferð Lengjudeildar karla, leiknum lauk með 1-3 sigri Þróttar. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir leikinn.


Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  3 Þróttur R.

„Ég er gríðarlega ánægður með mína menn og spilamennskuna í dag sem var mjög solid og þetta var sanngjarn sigur. Við vorum ekkert að tæta Fylkismenn í okkur en mér fannst vera ofan á og við allavega náðum að halda þeim vel í skefjum þannig að það stóð ekki mikil ógn af Fylkismönnum í fyrri hálfleiknum.''

Þróttarar komu vel út í seinni hálfleikinn og bæta við tveimur mörkum í síðari hálfleik. Hvað sagði Venni við sína menn í hálfleik?

„Ég gerði ráð fyrir að Fylkismenn myndu stíga ofar á völlinn í síðari hálfleik sem þeir gerðu. Við máttum ekki láta blekkjast á þessum fyrri hálfleik þó að við höfðum verið ofan á þar. Fylkismenn eru með gríðarlega sterkt lið og eru baráttuglaðir þannig ég reiknaði með að það yrði allt annar andi í þeim. Við þurftum bara að núllstilla okkur og byrja upp á nýtt og setja fókus í að berjast og vinna einvígin.''

Þróttur er komið á toppinn eftir sigur dagsins. Venni hlýtur að vera sáttur með það.

„Já auðvitað eru það góðar fréttir fyrir okkur en við höfum verið þar áður í sumar og nú þurfum við að höndla það aðeins betur en síðast.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner
banner