06.07.12 - 07:18
Hafliði Breiðfjörð
Igor Stimac tekur við landsliði Króatíu (Staðfest)

Igor Stimac í landsleik með Króatíu.

Mynd: Getty Images

Igor Stimac í landsleik með Króatíu.

Mynd: Getty Images
Igor Stimac fyrrverandi leikmaður Derby County, West Ham og króatíska landsliðsins hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Króatíu.
Stimac tekur við starfinu af Slaven Bilic sem hætti fyrr í sumar eftir að liðið féll úr keppni á Evrópumóti landsliða til að taka við Lokomotic Moskvu í Rússlandi.
Stimac sem er 44 ára gamall lék á sínum tíma 44 landsleiki fyrir Krótaíu og var með liðinu á Heimsmeistaramótinu árið 1988 þar sem liðið endaði í þriðja sæti.
Auk ensku liðanna tveggja lék hann með Hadjuk Split í heimalandinu á tíunda áratug síðustu aldar.
Hann mun stýra liði Króatíu í undankeppni HM 2014 en þar er liðið með Serbíu, Skotlandi, Wales og Makedóníu í riðli.

Heimild: AP