Fotbolti.net
06.07.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Asamoah Gyan til Al-Ain (Staðfest)

Asamoah Gyan til Al-Ain (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Al-Ain frá Sameinuðu arabísku Furstadæmunum hefur keypt framherjann Asamoah Gyan frá Sunderland.

Gyan fór óvænt til Al-Ain á láni í september í fyrra og hann hefur verið þar síðan þá.

Gyan kunni ekki vel við lífið í Norður-Englandi en honum líkar betur í sólinni í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum og nú hefur hann samið við Al-Ain.
Þessi 26 ára gamli Ganamaður kom til Sunderland frá Rennes á þrettán milljónir punda eftir HM 2010 og varð í kjölfarið dýrasti leikmaður félagsins frá upphafi.

Gyan skoraði samtals ellefu mörk í 37 leikjum á ferli sínum með Sunderland.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.