06.07.12 - 15:29
Magnús Már Einarsson
Wayne Bridge til Brighton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brighton í ensku Championship deildinni hefur fengið vinstri bakvörðinn Wayne Bridge á láni frá Manchester City fyrir komandi tímabil.
Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur ekki náð sér á strik eftir að fréttir bárust af því í byrjun árs 2010 að John Terry liðsfélagi hans í enska landsliðinu hefði haldið framhjá með þáverandi kærustu Bridge.

Bridge fór til West Ham á láni tímabilið 2010/2011 og á síðasta tímabili fór hann til Sunderland á láni.
Bridge, sem á 30 landsleiki að baki með Englendingum, mun nú leika í Championship deildinni á komandi tímabil.
,,Ég er hæstánægður með að fá Wayne til okkar. Hann hefur verið einn af þremur bestu vinstri bakvörðum landsins í mörg ár,\" sagði Gus Poyet stjóri Brighton.

Heimild: Heimasíða Brighton