Fotbolti.net
06.07.12 - 15:56
Elvar Geir Magnússon

Jónas Þór Næs aftur í Val (Staðfest)

Jónas Þór Næs aftur í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Færeyski bakvörðurinn Jónas Þór Næs skrifaði í dag undir eins árs samning við Val en frá þessu er greint á heimasíðu Hlíðarendafélagsins.

Jónas er einn af þeim þremur færeysku leikmönnum sem léku með Val í fyrra en það er samdóma álit flestra að hann hafi staðið sig best af þeim og var talinn einn besti hægri bakvörður deildarinnar.
Félagaskiptaglugginn opnar þann 15. júlí en sama dag mun Valur mæta FH.

Jónas hefur leikið 24 landsleiki fyrir Færeyjar en hann hefur undanfarna mánuði verið búsettur í Danmörku þar sem kærasta hans var við nám.

Það er góður styrkur fyrir Val að krækja í Jónas en liðið hefur verið að síga niður töfluna í Pepsi-deildinni að undanförnu og tapaði í gær 2-0 fyrir Grindavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.