06.07.12 - 16:38
Magnús Már Einarsson
Jonathan Woodgate til Middlesbrough (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Jonathan Woodgate hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Middlesbrough en hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.
Woodgate sem er 32 ára gamall kom til Middlesbrough frá Real Madrid árið 2006, fyrst um sinn á láni en var svo keyptur á 7 milljónir punda.
Hann stóð sig vel á 18 mánuðum þar og var svo seldur til Tottenham Hotspur í janúar 2008.
Woodgate lék á síðustu leiktíð með Stoke City eftir að hafa hætt hjá Tottenham en hann spilaði 17 leiki með fyrrnefnda félaginu.
,,Ég vil hjálpa Boro að komast aftur í úrvalsdeildina og ég tel að það sé hægt með núverandi hóp,\" sagði Woodgate sem hefur einnig leikið með Leeds og Newcastle á ferli sínum.

Heimild: Heimasíða Middlesbrough