Fotbolti.net
06.07.12 - 21:00
Brynjar Ingi Erluson

Steven Davis til Southampton (Staðfest)

Steven Davis til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Southampton hefur fengið norður-írska miðjumanninn Steven Davis til liðs við sig frá Glasgow Rangers.
Davis, sem er 27 ára gamall, hefur verið lykilmaður í liði Rangers undanfarin ár, en liðið fór í greiðslustöðvun og ljóst er að það kemur ekki til með að leika í efstu deild í Skotlandi á næsta tímabili.

Margir leikmenn hafa því verið að yfirgefa félagið í kjölfarið af þessu og ákvað Davis að gera þriggja ára samning við Southampton, sem leikur í ensku úrvalsdeildinni að nýju eftir nokkurra ára fjarveru.

Davis er annar leikmaðurinn sem að Southampton fær til sín í sumar, en liðið fékk Jay Rodriguez frá Burnley á dögunum.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.