Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 06. október 2019 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ramos ætlar að spila til fertugs
Sergio Ramos.
Sergio Ramos.
Mynd: Getty Images
Hinn 33 ára gamli varnarmaður Real Madrid og spænska landsliðsins, Sergio Ramos virðist ekkert vera hugsa um að hætta í fótboltanum á næstunni ef eitthvað er að marka orð spænska landsliðsþjálfarans Robert Moreno.

„Allt sem hann gerir fyrir hópinn er frábært, hann leggur sitt af mörkum í líkamsræktinni, búningsklefanum og á vellinum. Hann kemur með jákvæðan anda inn í hópinn og gerir mikið fyrir okkur."

„Hann vill spila þar til hann verður fertugur og ég tel hann því eiga mörg góð ár eftir í boltanum," sagði Moreno landsliðsþjálfari Spánar um Ramos.

Spánverjar mæta Noregi og Svíþjóð í komandi landsleikjahléi.

Athugasemdir
banner
banner
banner