Argentínski markvörðurinn Willy Caballero er að snúa aftur í enska boltann.
Samkvæmt heimildum Daily Mail, þá er þessi reynslumikli markvörður að skrifa undir samning við Southampton. Hann mun vera með liðinu í einn mánuð.
Alex McCarthy og Fraser Forster, aðalliðsmarkverðir Southampton, eru báðir meiddir. Hinn 23 ára gamli Harry Lewis er næsti maður inn, en hann hefur ekki enn spilað leik í ensku úrvalsdeildinni.
Caballero, sem er fertugur, mun gangast undir læknisskoðun í dag og skrifa undir stuttan samning við Southampton. Hann mun hjálpa liðinu í þessum vandræðum.
Caballero er fyrrum markvörður Chelsea og Manchester City. Hann á leiki að baki í efstu deild Englands, Spánar og Argentínu.
Athugasemdir