Fotbolti.net
21.10.26 - 12:11
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Chukwueze bætist á meiðslalista Milan

Chukwueze bætist á meiðslalista Milan
Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn Samuel Chukwueze hjá AC Milan er meiddur á mjöðm en samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er búist við því að nígeríski landsliðsmaðurinn verði frá keppni næstu vikurnar eða jafnvel mánuði.

Þessi fyrrverandi lánsmaður Fulham tók ekki þátt í æfingu í morgun, fyrir leik gegn Bournemouth í Evrópudeildinni, og mun gangast undir læknisskoðun síðar í dag.

Chukwueze, sem er 27 ára, hefur fundið fyrir óþægindum í vinstri mjöðm og Mílanó óttast að meiðslin gætu haldið honum frá keppni í einhvern tíma.

Chukwueze hefur verið fastamaður í byrjunarliði Milan undir stjórn Ruben Amorim á þessu tímabili og hefur átt tvær stoðsendinga í átta leikjum í öllum keppnum.
Nýlega tilkynnti AC Milan að belgíski kantmaðurinn Alexis Saelemaekers hafi farið í ökklaaðgerð sem haldi honum frá keppni næstu fimm mánuði að minnsta kosti.

Þá verður portúgalski sóknarmaðurinn Goncalo Ramos ekki með Milan í Evrópuleiknum gegn Bournemouth vegna meiðsla í kálfa. Ekki er ljóst hvenær hann mun snúa aftur.

AC Milan er í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Lazio7+1019
3Roma7+1317
4Milan7+715
5Como7+514
6Frosinone7+413
7Cagliari7-113
8Juventus7+111
9Napoli7+310
10Torino7+110
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Sassuolo7-28
14Monza7-27
15Bologna7-45
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.