,,Ég er gríðarlega sáttur við leikinn og úrslitin," sagði Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunnar eftir 3-0 sigur á ÍBV í dag.
,,Þetta var svolítið köflótt. Við vorum í miklum vandæðum í byrjun leiks og ÍBV kom okkur á óvart hvernig þær spiluðu. Þær breyttu svolítið taktískt séð. Það var ekki fyrr en um miðjan hálfleikinn sem við náðum einhverjum tökum á leiknum. Í seinni hálfleik fannst mér þetta engin spurning."
Harpa Þorsteinsdóttir skoraði öll mörk Stjörnunnar í dag og átti mjög góðan leik.
,,Hún var frábær, og glæsileg mörk hjá henni. Hún þarf bara að halda þessu áfram. Þetta er það sem hún á að gera, hún á að skora."
Nánar er rætt við Þorlák í sjónvarpinu að ofan.






















