Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 07. maí 2021 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lið 1. umferðar: Þrjár frá Breiðabliki
Agla María skoraði eitt og lagði upp tvö
Agla María skoraði eitt og lagði upp tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sædís var maður leiksins gegn val
Sædís var maður leiksins gegn val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrst umferðin í Pepsi Max-deild Kvenna fór fram á þriðjudag og miðvikudag. Breiðablik vann 9-0 stórsigur á Fylki á Kópavogsvelli og er Vilhjálmur Kári Haraldsson, þjálfari Breiðabliks, þjálfari umferðarinnar.


Breiðablik var öflugt í leiknum og er liðið með þrjá fulltrúa í liðinu. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir lék á hægri kantinum, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir stjórnaði miðjunni og lagði upp eitt af mörkunum. Agla María Albertsdóttir er einnig í liðinu, hún skoraði eitt og lagði upp tvö.

Þór/KA vann enudrkomusigur gegn ÍBV og skoraði Hulda Ósk Jónsdóttir jöfnunarmarkið eftir frábært einstaklingsframtak.

Selfoss vann 0-3 útisigur gegn Keflavík. Brenna Lovera skoraði tvö mörk í leiknum og Hólmfríður Magnúsdóttir eitt ásamt því að leggja upp fyrra mark Lovera.

Valur vann torsóttan 2-1 sigur gegn Stjörnunni. Sædís Rún Heiðarsdóttir var frábær í vinstri bakverðinum hjá Stjörnunni og Anna María Baldursdóttir var einnig mjög góð í miðri vörninni. Hjá Val var Mist Edvardsdóttir öflug í miðverðinum.

Á Sauðárkróki var Amber Kristin Michel maður leiksins í marki Króksara. Katherine Amanda Cousins jafnaði leikinn með frábærri aukaspyrnu undir lok leiks.
Athugasemdir
banner
banner
banner