Grótta 5 - 0 Vestri
1-0 Luke Morgan Conrad Rae ('5 )
2-0 Kristófer Orri Pétursson ('6 )
3-0 Kjartan Kári Halldórsson ('22 )
4-0 Luke Morgan Conrad Rae ('82 )
5-0 Sigurður Hrannar Þorsteinsson ('87 )
Grótta og Vestri áttust við í lokaleik fyrstu umferðar Lengjudeildarinnar þetta sumarið.
Heimamenn í Gróttu hófu leikinn af krafti en Luke Rae kom liðinu yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Það leið ekki á löngu fyrr en Kristófer Orri Pétursson tvöfaldaði forystuna fyrir Gróttu.
„VÁÁÁ!!! Varla byrjaður að skrifa um fyrra mark Gróttu þegar Kristófer skorar! Marvin ver vel en Kristófer nær að fylgja vel eftir." Skrifaði Kári Snorrason í textalýsingu leiksins.
Staðan var 3-0 í hálfleik en það var Kjartan Kári Halldórsson sem skoraði þriðja markið. Luke Rae skoraði síðan sitt annað og fjórða mark Gróttu og Sigurður Hrannar Þorsteinsson rak síðasta naglann í kistu Vestra.