Argentínski varnarmaðurinn Leo Balerdi meiddist á æfingu með argentínska landsliðinu og mun ekki fara með liðinu á HM.
Balerdi, sem er 27 ára gamall, var farinn að vinna sér inn mikilvægt hlutverk í hópnum hjá Lionel Scaloni.
Í gær meiddist hann aftan í kálfa og ljóst er að hann verður frá í að minnsta kosti þrjár vikur.
Argentínska knattspyrnusambandið staðfesti á samfélagsmiðlum að ákveðið hefði verið að skilja hann eftir heima og hefur Scaloni nú nokkra daga til þess að kalla inn mann í hans stað.
Marcos Senesi, sem er að ganga í raðir Tottenham frá Bournemouth, er talinn líklegastur til að fá sæti í hópnum en Lautaro Di Lollo, leikmaður Boca Juniors, kemur einnig til greina.
Argentína mun spila við Ísland í síðasta æfingaleik sínum fyrir HM. Leikurinn fer fram á Jordan-Hare-leikvanginum í Auburn í Alabama og hefst klukkan 01:00 aðfaranótt miðvikudags.
#SelecciónMayor El defensor Leonardo Balerdi sufrió una lesión muscular en el sóleo de su pierna derecha y no podrá ser parte de la nómina que jugará la Copa del Mundo.
— ???????? Selección Argentina ??? (@Argentina) June 6, 2026
¡Ánimo, fuerza y pronta recuperación, flaco! ???????????????? pic.twitter.com/gMZAiS2b2k
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


