Fotbolti.net
28.07.26 - 10:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Freyja Stefáns seld til Djurgården (Staðfest)

Freyja Stefánsdóttir.

Freyja Stefánsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Freyja Stefánsdóttir úr Víkingi hefur verið seld til sænska félagsins Djurgården. Víkingur greinir frá þessu í tilkynningu í morgunsárið.

Freyja er uppalinn Víkingur og var á sínum tíma yngst allra Víkinga til að skrifa undir samning við knattspyrnudeild Víkings, en hún hefur spilað 106 meistaraflokksleiki fyrir félagið og skorað í þeim 30 mörk.
Víkingur er í bullandi fallbaráttu en Freyja hefur verið besti sóknarmaður liðsins í sumar og skorað sex mörk í tólf leikjum í Bestu deildinni.

„Knattspyrnudeild Víkings óskar Freyju velgengni og hamingju í Svíþjóð og um leið þökkum við Freyju kærlega fyrir sitt framlag til félagsins. Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Freyja," segir í tilkynningu Víkinga.

Freyja var hluti af U19 landsliðinu sem keppti á lokakeppni EM í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.