Fotbolti.net
07.07.12 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Óðinn Árnason í Ginola (Staðfest)

Óðinn Árnason í Ginola (Staðfest)
Canon

Mynd: Aðsend

Fyrrum fyrirliði Þórs, Fram og Grindavíkur, Óðinn Árnason, hefur snúið aftur í hið stórglæsilega knattspyrnulið Ginola sem leikur á Pollamóti Icelandair og Þórs á Akureyri um helgina.
Óðinn er margreyndur varnarsérfræðingur sem á ferli sínum hefur spilað 148 meistaraflokksleiki og skorað í þeim heiltmark. Óðinn flutti búferlum til Svíþjóðar fyrir ári síðan í leit að nýrri mjöðm, en sú gamla týndist einmitt í leik með Ginola á Pollamótinu 2010.

Aðspurður sagði Óðinn það aðeins hafa verið tímaspursmál um hvenær hann snéri heim í Ginola: „Ég er auðvitað ekki jafn hraður og grannur og áður og því spurning hvernig ég passa inn í jafn vel þjálfaðan hóp mannasem Ginolaliðið er, en ef mjöðmin heldur þá sé ég jafnvel fram á einhverjar mínútur,\" sagði hann.

,,Ég þarf aftur á móti að passa vel upp á mig og hafa í huga „Hips Don‘t Lie“ með kolumbískusöngdívunni Shakiru“ en Óðinn er einmitt annálaður aðdáandi hinnar seiðandi söngdrottningar.\"

Sir Hlynur F. Þormóðsson,knattspyrnustjóri Ginola liðsins, sagði Óðinn vissulega vera góða viðbót við hópinn en hann hafi aftur á móti misst af margra mánaða undirbúningi liðsins fyrir mótið og kaupin þvíákveðin áhætta. „Hann er vissulega ljósárum á eftir öðrum liðsmönnum hvað líkamlegt form varðar, en Ginolahjartaðslær af miklum móð í hjarta Óðins og það mun skila honum nokkrum mínútum á vellinum“, sagði hinn þokkafulli knattspyrnustjóri Ginola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.