07.07.12 - 06:00
Mate Dalmay
Tom Cruise til Torquay United (Staðfest)

Tom Cruise í leik með Arsenal.

Mynd: Getty Images

Tom Cruise í leik með Arsenal.

Mynd: Getty Images
Hinn tvítugi Tom Cruise hefur skrifað undir eins árs samning við Torquay sem leikur í annarri deildinni á Englandi, það er í fjórðu efstu deild. Leikmaðurinn var með lausan samning.
Tom Cruise sem er uppalinn hjá Arsenal getur spilað bæði sem vinstri bakvörður og á vinstri kanti en hann er einnig tiltækur sem djúpur miðjumaður.
,,Hann var fyrirliði í flestum yngri landsliðum Englendinga og kom inná hjá Arsenal í Meistardeildinni á sínum tíma þannig að við höfum mikla trú á Tom og hans hæfileikum,\'\' segir þjálfari Torquay Martin Ling í viðtali við BBC.
En Tom kom inná sem skiptimaður fyrir Gael Clichy í leik gegn Olympiakos fyrir nokkrum árum.
Leikmaðurinn hefur síðustu ár átt við töluverð meiðsli að stríða, hann missti m.a. af öllu síðasta tímabili.