Fotbolti.net
07.07.12 - 14:06
Ívan Guðjón Baldursson

Kalou kominn til Lille (Staðfest)

Kalou kominn til Lille (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska knattspyrnufélagið Lille hefur staðfest að Salomon Kalou, fyrrverandi leikmaður Chelsea, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið.

Kalou er sóknarmaður frá Fílabeinsströndinni en hann hefur spilað fyrir Chelsea í sex ár og unnið talsvert magn titla með liðinu.
Kalou kemur frítt til Lille en samningur hans við Chelsea rann út fyrir viku. Sóknarmaðurinn var orðaður við lið vítt og breytt um Evrópu en endaði hjá Lille þar sem hann mun væntanlega fylla skarðið sem Joe Cole skilur eftir sig.

,,LOSC staðfestir komu Salomon Kalou til félagsins, en hann hefur gengist undir læknisskoðun eftir komu sína til Domaine de Luchin,\" stendur í yfirlýsingu á opinberri vefsíðu félagsins.

,,Samningurinn við þennan 26 ára gamla sigurvegara Meistaradeildarinnar er til fjögurra ára. Þessi fyrrverandi leikmaður Chelsea er samningsbundinn félaginu til 2016.\"

Kalou kom til Chelsea aðeins tvítugur þegar Jose Mourinho fékk hann til liðsins. Hann hefur spilað 254 leiki fyrir Chelsea en hann byrjaði inná í aðeins 147 þeirra og skoraði 60 mörk fyrir félagið.

Kalou var í lykilhlutverki hjá Chelsea á síðasta tímabili undir stjórn Roberto Di Matteo þar sem hann var í byrjunarliði liðsins í úrslitaleikjum enska FA bikarsins og Meistaradeildarinnar.

Kalou gengur til liðs við Lille sem var franskur meistari 2011 og endaði í þriðja sæti á síðasta tímabili og tekur því þátt í Meistaradeild Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.