07.07.12 - 17:37
Brynjar Ingi Erluson
Gianfranco Zola tekinn við Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski snillingurinn Gianfranco Zola hefur skrifað undir tveggja ára samning við enska fyrstudeildar félagið Watford.
Sean Dyche látinn taka poka sinn hjá Watford fyrr í vikunni og tók félagið ekki langan tíma að finna arftaka hans.
Watford var keypt af Pozzo-fjölskyldunni fyrir nokkru síðan og var Gianfranco Zola efstur á blaði þeirra knattspyrnustjóra sem komu til greina.
Zola hefur ekki þjálfað síðan hann var við stjórnvölinn hjá West Ham United, en hann hætti þar árið 2010.
Hann er þá einhver besti leikmaðurinn í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, en hann lék 312 leiki með félaginu og skoraði 80 mörk.

Heimild: Sky