Selfoss lagði Hauka að velli í stórleik í 2. deild karla í dag. Gestirnir frá Selfossi voru manni færri stærsta hluta leiksins eftir að Guðmundur Tyrfingsson var rekinn af velli í fyrri hálfleik.
Guðmundur fékk beint rautt spjald fyrir að ýta í Nikola Dejan Djuric eftir að brotið hafði verið á þeim síðarnefnda. Nikola svaraði fyrir sig og fékk gult spjald.
Haukar voru betri eftir rauða spjaldið og skoraði Tómas Leó Ásgeirsson í upphafi síðari hálfleiks. Skömmu síðar tókst Ingva Rafni Óskarssyni að jafna stöðuna þvert gegn gangi leiksins.
Leikurinn jafnaðist út eftir jöfnunarmarkið og náði Hrvoje Tokic að pota inn sigurmarki fyrir tíu Selfyssinga á 73. mínútu. Mikilvægur sigur Selfoss sem jafnaði Hauka að stigum með sigrinum, bæði lið eru með níu stig eftir fjórar umferðir.
Haukar 1 - 2 Selfoss
1-0 Tómas Leó Ásgeirsson ('49)
1-1 Ingvi Rafn Óskarsson ('53)
1-2 Hrvoje Tokic ('73)
Rautt spjald: Guðmundur Tyrfingsson , Selfoss ('23)
Þróttur Vogum vann þá nágrannaslag gegn Njarðvík og náði í sinn fyrsta sigur á deildartímabilinu.
Viktor Smári Segatta gerði eina mark leiksins í uppbótartíma fyrri hálfleiks en heimamenn í Njarðvík fóru illa með fjölmargar álitlegar sóknir í fyrri hálfleik.
Þróttarar voru líklegri til að skora í síðari hálfleik og fara heim með frábæran sigur. Þróttur er með fimm stig og Njarðvík sex eftir fjórar fyrstu umferðirnar.
KF lagði þá Dalvík/Reyni að velli í fjörugum leik á meðan ÍR skoraði þrjú á útivelli gegn Víði. Völsungur og Fjarðabyggð skildu jöfn, 2-2.
Njarðvík 0 - 1 Þróttur V.
0-1 Viktor Smári Segatta ('45)
Dalvík/Reynir 2 - 4 KF
1-0 Borja Lopez Laguna ('6)
1-1 Theodore Develan Wilson III ('64)
1-2 Hrannar Snær Magnússon ('67)
1-3 Theodore Develan Wilson III ('81)
1-3 Oumar Diouck ('84, misnotað víti)
1-4 Oumar Diouck ('84)
2-4 Borja Lopez Laguna ('86, víti)
Víðir 0 - 3 ÍR
0-1 Nathan Ward ('16, sjálfsmark)
0-2 Viktor Örn Guðmundsson ('21)
0-3 Andri Már Ágústsson ('79)
Völsungur 2 - 2 Fjarðabyggð
1-0 Stígur Annel Ólafsson ('8)
2-0 Ásgeir Kristjánsson ('57)
2-1 Vice Kendes ('72)
2-2 Guðjón Máni Magnússon ('75)
Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir