07.08.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Di Biagio til Brescia frá Inter (Staðfest)
Ítalski miðjumaðurinn Luigi Di Biagio hefur fært sig til í Seríu-A og er kominn til Brescia frá Inter Milan. Kaupverðið á þessum 32 ára leikmanni er ekki gefið upp en hann hittir nýju liðsfélaga sína á morgun. Ítalskir fjölmiðlar segja að Inter hafi leyst Di Biagio undan samningi sínum þar sem hann er ekki lengur hluti af áætlunum Hector Cuper stjóra Inter.
Di Biagio fæddist í Róm og fór til Inter 1999 eftir fjögur ár hjá AS Roma. Þessi harði miðjumaður kallar ekki allt ömmu sína. Hjá Brescia hittir hann fyrir fyrrum félaga sinn hjá Inter og fyrrum besta knattspyrnumann Evrópu, Roberto Baggio.
