Sjáðu markið: Haaland kominn á blað - Skoraði af vítapunktinum


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Erling Haaland er í byrjunarliði Manchester City sem er að spila gegn West Ham á útivelli í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Staðan er 1-0 í hálfleik. Það var enginn annar en Haaland sem skoraði markið.
Alphonse Areola braut á honum inn í teignum og vítaspyrna dæmd. Haaland fór sjálfur á punktinn og skoraði af miklu öryggi. Drauma byrjun fyrir norska framherjann.
Areola var nýkominn inná en Lukas Fabianski meiddist og þurfti því að fara af velli.





