Erik Hamren, landsliðsþjálfari, tilkynnir klukkan 13:15 í dag hópinn fyrir komandi leiki gegn Tyrklandi og Moldavíu í undankeppni EM.
Ísland mætir Tyrklandi í Istanbul eftir viku og Moldavíu sunnudaginn 17. nóvember.
Ísland þarf að vinna báða leikina og treysta á að Tyrkland misstígi sig gegn Andorra í lokaumferðinni til að komast á EM á næsta ári. Ef það tekst ekki mun Ísland fara í umspil um sæti á EM í mars.

Jóhann Berg Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson meiddust báðir í síðasta landsliðsverkefni. Jóhann Berg verður væntanlega ekki með í komandi leikjum og óvíst er ennþá með þátttöku Rúnars.
Þá er landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson ennþá á meiðslalistanum sem og Albert Guðmundsson.
Fótbolti.net verður í Laugardalnum í dag og mun vera með beina útsendingu þaðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir