Fotbolti.net
07.12.19 - 15:20
Ívan Guðjón Baldursson

Walcott og Calvert-Lewin hrósuðu Ferguson

Walcott og Calvert-Lewin hrósuðu Ferguson
Canon

Mynd: Getty Images

Everton skellti Chelsea 3-1 í fyrsta leik undir stjórn Duncan Ferguson, sem tók við af Marco Silva sem bráðabirgðarstjóri í vikunni.
Leikmenn Everton börðust eins og ljón og verðskulduðu sigurinn fyllilega. Theo Walcott og Dominic Calvert-Lewin, sem skoraði tvennu, fóru í viðtal að leikslokum.

„Duncan er tekinn við og það sést að þetta félag er hjarta hans. Við spiluðum eins og Everton á að spila, við spiluðum fyrir hvorn annan og Dominic var stórkostlegur," sagði Walcott.

„Við vildum vera ákafir og setja þá undir pressu, það virkaði vel. Duncan sagði okkur að fara út á völlnn og njóta okkar. Ég veit að þetta hljómar klisjukennt en það er það sem við gerðum."

Calvert-Lewin tók undir orð Walcott og undirstrikaði mikilvægi ástríðunnar sem Ferguson kemur með í starfið.

„Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur. Ég hef átt í nánu sambandi við Duncan í þrjú ár og treysti honum. Við fundum fyrir mikilvægi þess að fara á völlinn og leggja okkur 100% fram."

Everton reif sig upp úr fallsæti með sigrinum og er með 17 stig eftir 16 umferðir.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.