Fotbolti.net
08.03.21 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Önnur ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max - KR stekkur hæst

KR eru hástökkvararnir.

KR eru hástökkvararnir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á laugardaginn var <a href="https://fotbolti.net/news/06-03-2021/b-utvarpsthatturinn-b-otimabaer-pepsi-max-spa-og-boltapolitik" target="_blank">önnur ótímabæra spáin fyrir Pepsi Max-deild karla</a> opinberuð. Númer tvö í röðinni.
Það voru nokkrar breytingar á spánni. Tvö efstu liðin eru þau sömu og þau fjögur neðstu eru einnig í sömu röð og síðast.

KA fer niður um eitt sæti frá því síðast og Víkingur upp um eitt sæti. FH, Stjarnan og Fylkir fara öll niður um eitt sæti en hástökkvararnir eru KR-ingar. Þeir fara úr sjötta sæti í það þriðja.

„Eitt af allra heitustu liðunum á undirbúningstímabilinu eru gömlu karlarnir, Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Gömlu karlarnir eru bestir," sagði Tómas Þór Þórðarson en hægt er að hlusta á alla umræðuna hér að neðan.

Önnur ótímabæra spáin:
1. Valur
2. Breiðablik
3. KR
4. FH
5. Stjarnan
6. Fylkir
7. Víkingur R.
8. KA
9. HK
10. ÍA
11. Keflavík
12. Leiknir R.

<b>Útvarpsþátturinn</b> - Ótímabær Pepsi Max spá og boltapólitík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.