Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   lau 08. maí 2021 14:35
Aksentije Milisic
Marca: Real mun hlusta á tilboð í Hazard
Mynd: Getty Images
Spænski miðillinn Marca greinir frá því að Real Madrid mun hlusta á tilboð í Eden Hazard, leikmann liðsins.

Hazard kom til Real Madrid árið 2019 eftir að hafa verið aðalmaðurinn hjá Chelsea í mörg ár.

Tími hans hjá Real hefur hins vegar verið martröð en hann hefur lítið spilað vegna þráðlátra meiðsla. Þegar hann hefur spilað þá hefur honum ekki tekist að heilla menn.

Hann sást hlægjandi með leikmönnum Chelsea eftir tap Real gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Þær myndir fór mjög illa í stuðningsmenn Real.

Hazard er talinn falur fyrir um 90 milljónir punda og segir Marca frá því að Real Madrid sé tilbúið að selja leikmanninn.

Real Madrid er enn í baráttunni um titilinn á Spáni en það ríkir mikil spenna á toppi deildarinnar fyrir lokaumferðirnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner