Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð portúgalska fótboltasnillingsins Bernardo Silva sem er á leið frá Manchester City á frjálsri sölu.
Bernardo, sem verður 32 ára í september, hefur unnið til ógrynni titla á níu árum hjá Man City og vill takast á við nýja áskorun á þessum tímapunkti ferilsins.
Bernardo er enn algjör lykilmaður í ógnarsterku liði City og því eru nokkur af stærstu félögum Evrópu að berjast um að krækja í hann.
Barcelona er talinn vera líklegasti áfangastaðurinn en fleiri félög eru áhugasöm jafnt innan sem utan Evrópu.
Bernardo er í portúgalska landsliðshópnum sem fer á heimsmeistaramótið í sumar og ætlar hann taka ákvörðun varðandi framtíðina eftir lokamótið.
Hann lét ummæli falla um helgina sem ýjuðu að því að hann ætlaði að taka ákvörðun fyrir upphafsflautið á HM, en svo er ekki. Hann ætlar að bíða.
06.06.2026 22:07
Bernardo staðfestir áhuga Barcelona - „Margir möguleikar í stöðunni“





