Fotbolti.net
08.07.12 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Charlie Davies til Randers (Staðfest)

Charlie Davies til Randers (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bandaríski leikmaðurinn Charlie Davies er genginn í raðir Randers FC í Danmörku, en hann gerði tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Davies, sem er 26 ára gamall var á mála hjá Sochaux í Frakklandi, en hann kom til liðsins frá Hammarby í Svíþjóð. Honum hefur gengið illa að finna sig hjá franska liðinu og ákvað því að reyna fyrir sér í Danmörku.

Hann er að reyna að endurlífga feril sinn eftir bílslys sem hann lenti í árið 2009, en hann var heppinn að týna ekki lífi sínu í slysinu. Hann var þá byrjunarliðsmaður í bandaríska landsliðinu og var einn af lykilmönnum liðsins.

Hann hefur nú gert tveggja og hálfs árs samning við Randers, sem að leikur í efstu deild í Danmörku, en hann mætti á sína fyrstu æfingu í gær.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.