Fotbolti.net
08.07.12 - 14:30
Brynjar Ingi Erluson

Jackson Martinez til Porto (Staðfest)

Jackson Martinez til Porto (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

FC Porto frá Portúgal hefur tryggt sér þjónustu kólumbíska framherjans Jackson Martinez frá Jaguares í Mexíkó.
Martinez, sem er 25 ára gamall hafði áður verið orðaður við Liverpool á Englandi, en Porto hafði betur í kapphlaupinu og skrifaði framherjinn undir fjögurra og hálfs árs samning við félagið.

Hann kemur til Porto fyrir 11 milljónir evra, en hann er sagður vera næsti Radamel Falcao, sem hljómar nokkuð furðulega í ljósi þess að Falcao er einungis einu ári eldri en Jackson Martinez.

Portúgalskir fjölmiðlar halda því þá fram að Porto hafi sett klásúlu í samning hans sem segir að honum er frjálst að fara frá félaginu fyrir 40 milljónir evra.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.