Fotbolti.net
08.07.12 - 16:30
Brynjar Ingi Erluson

Eljero Elia til Werder Bremen (Staðfest)

Eljero Elia til Werder Bremen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska liðið Werder Bremen hefur fengið hollenska vængmanninn Eljero Elia í sínar raðir frá Juventus.
Elia, sem er 25 ára gamall kom til Juventus frá þýska liðinu Hamburg árið 2010, en fékk lítið af tækifærum eftir að Antonio Conte tók við liðinu og þurfti meira og minna að sitja á tréverkinu og missti hann í kjölfarið af sæti sínu í hollenska landsliðinu.

Fótbolti.net greindi frá því fyrr í vikunni að Elia væri á leið til Werder Bremen og að hann myndi skrifa undir fjögurra ára samning þessa helgina og gekk það eftir. Hann skrifaði undir fjögurra ára samning í dag,

Kaupverðið er talið nema um 6,5 milljónir evra, en Bremen vildi upphaflega fá leikmanninn að láni, en Juventus vildi selja hann frá félaginu.

Elia á 26 leiki að baki með hollenska landsliðinu og hefur í þeim skorað tvö mörk, en hann fór ekki með liðinu á Evrópumótið í Póllandi og Úkraínu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.