08.07.12 - 18:30
Daníel Freyr Jónsson
Deschamps tekinn við franska landsliðinu (Staðfest)

Didier Deschamps.

Mynd: Getty Images

Didier Deschamps.

Mynd: Getty Images
Franska knattspyrnusambandið hefur staðfest ráðningu Didier Deschamps sem stjóra landsliðsins.
Deschamps tekur þar við stöðunni af Laurent Blanc, sem sagði upp starfi sínu eftir slakkt gengi á EM í sumar.
Þessi fyrrum stjóri Monaco og Juventus yfirgaf Marseille fyrir skömmu og ljóst var að hann yrði ráðinn sem landsliðsþjálfari.
Franska landsliðið hefur verið í eintómu veseni undanfarin ár. Fræg er ferð þeirra á HM 2010 þar sem allt sauð upp úr, en einnig munu að minnst fjórir leikmenn af öllum líkindum fá sektir og leikbönn eftir hegðun sína með liðinu á EM í sumar.
Á ferli sínum sem leikmaður lék Deschamps sem miðjumaður. Hann átti mjög farsælum ferli að fagna þar sem hann lék meðal annars með Chelsea, Juventus og Marseille.