Fotbolti.net
08.08.26 - 21:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jafnaði markamet Njarðvíkur

Jafnaði markamet Njarðvíkur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Oumar Diouck er orðinn markahæsti leikmaður í sögu Njarðvíkur ásamt Kenneth Hogg eftir að hafa skorað tvennu í 3-1 sigri liðsins á Vestra í Lengjudeildinni í gær.

Diouck gekk til liðs við Njarðvík frá KF árið 2022 og hefur spilað 129 leiki fyrir félagið. Hann skoraði 74. og 75. mark sitt í dag. Hogg spilaði með liðinu frá 2017-2025.
Lengjudeildin: Diouck sökkti Vestra - Tvö vítamörk í jafntefli á Seltjarnarnesi
TENGT EFNI

Lengjudeildin: Diouck sökkti Vestra - Tvö vítamörk í jafntefli á Seltjarnarnesi

„Svo sannarlega vel gert hjá Oumar sem hefur lagt gríðarlega hart að sér að komast í sitt besta stand eftir að hafa meiðst nokkuð illa á undirbúningstímabilinu," segir í færslu Njarðvíkur á Facebook.

„Við vonumst síðan að sjálfsögðu eftir að sjá Oumar slá metið næstkomandi fimmtudag þegar við förum í erfiðan útileik gegn Gróttu."

Hann hefur spilað tíu leiki í deildinni í sumar og skorað fjögur mörk. Njarðvík hefur unnið fimm af síðustu sex leikjum sínum og er í 4. sæti Lengjudeildarinnar með 29 stig.

Oumar Diouck: Loksins 100% eftir tveggja mánaða fjarveru

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.