Fotbolti.net
08.09.22 - 20:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vafasamt víti dæmt á Man Utd - Réttur dómur?

Vafasamt víti dæmt á Man Utd - Réttur dómur?
Canon

Mynd: EPA

Real Sociedad leiðir gegn Manchester United á Old Trafford í Evrópudeildinni. 70 mínútur eru liðnar af leiknum og kom eina markið á 59. mínútu.

Markið kom eftir að vítaspyrna var dæmd á Lisandro Martínez. David Silva á skottilraun að marki United og Martínez henti sér fyrir hana.

Boltinn fór af fæti Martínez og skaust í kjölfarið í hönd hans. Atvikið var skoðað í VAR og dómurinn stóð. Martínez fékk í kjölfarið gult spjald.

Brais Mendez steig á punktinn og skoraði framhjá David de Gea í marki United.
Vítaspyrnudóminn og vítið má sjá með því að smella hér. Dæmi hver fyrir sig.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.