
Eins og við sögðum frá í fyrradag vann Ísland æfingamót U17 ára landsliða kvenna sem fór fram í Portúgal undanfarna daga. Liðið hafði gert jafntefli við heimastúlkur í fyrsta leik og fylgdi því svo eftir með sigri á Slóvakíu.
Lokaleikurinn var svo 2 - 1 sigur á Finnlandi á þriðjudaginn en mörkin skoruðu þær Sigdís Eva Bárðardóttir og Ísabella Sara Tryggvadóttir sem skoraði í uppbótartíma.
KSÍ hefur nú birt mörk Íslands í lokaleiknum en þau má sjá hér að neðan.
???? U17 kvenna vann sigur á alþjóðlegu æfingamóti á dögunum, en hér má sjá mörkin tvö sem tryggðu liðinu sigur gegn Finnlandi í síðasta leik sínum á mótinu.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) February 9, 2023
???? The goals from our U17 women's side win against Finland on Tuesday.#dottir pic.twitter.com/tw503p2A7S
Athugasemdir