09.03.18 - 15:12
Elvar Geir Magnússon
Ívar Reynir skrifar undir hjá Ólsurum (Staðfest)

Ívar Reynir Antonsson.

Mynd: Víkingur Ólafsvík

Ívar Reynir Antonsson.

Mynd: Víkingur Ólafsvík
Ívar Reynir Antonsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík en hann er uppalinn hjá félaginu.
Ívar, sem verður 18 ára gamall í sumar, gekk í raðir Fram fyrir tveimur árum. Hann spilaði svo sína fyrstu leiki með Fram í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.
Þá á hann einnig að baki þrettán landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
„Víkingur Ó. Lýsir yfir mikilli ánægju með félagsskiptin og býður Ívar velkominn heim á Snæfellsnesið,\" segir í tilkynningu frá Ólsurum.
Víkingur Ó. féll úr Pepsi-deildinni í fyrra en gríðarlega miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi liðsins í vetur.