Fotbolti.net
09.03.18 - 18:00
Ingólfur Stefánsson

Reus búinn að skrifa undir nýjan samning hjá Dortmund (Staðfest)

Reus búinn að skrifa undir nýjan samning hjá Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marco Reus hefur skrifað undir nýjan samning við þýska félagið Borussia Dortmund sem mun halda honum hjá félaginu til ársins 2023.

Reus hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu en sneri aftur í síðasta mánuði og hefur verið duglegur við markaskorun síðan.

Framtíð þýska landsliðsmannsins hefur verið talsvert í umræðunni síðustu ár en hann hefur verið orðaðu við flest stórlið í knattspyrnuheiminum.

Hinn 28 ára Reus hefur nú staðfest að ekkert sé til í þeim sögusögnum með því að skrifa undir nýjan langtímasamning hjá Dortmund.
„Ég hef klæðst þessari treyju síðan árið 2012 og ég er ánægður og stoltur að geta tilkynnt það að ég mun halda því áfram,\" sagði Reus við undirskriftina.

„Þetta er heimili mitt og Dortmund er félagið mitt. Síðan ég var krakki hefur mig dreymt um að klæðast gulu og svörtu og spila fyrir þetta félag.\"

„Ég er sannfærður um að með þessu skrefi og samning sé ég að sýna vilja minn til þess að vera hér í langan tíma.\"


Michael Zorc framkvæmdastjóri Dortmund lýsti yfir ánægju sinni með undirskrift Reus.

„Marco bætir hvaða lið sem er. Hann er leikmaður stóru augnablikanna og mikilvægra marka. Hann er andlit þessa félags.\"

✍️ @woodyinho verlängert Vertrag langfristig bis 2023 #REUS2023 https://t.co/ERSZOENupJ pic.twitter.com/Ja61GGNN5q

— Borussia Dortmund (@BVB) March 9, 2018



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.