Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 09. mars 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nær U19 kvenna að vinna Þýskaland í fyrsta sinn?
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
U19 ára landslið kvenna mætir Þýskalandi í dag á La Manga, en um er að ræða þriðja og síðasta leik liðsins í æfingaferð þar.

Stelpurnar hafa unnið báða leikina til þessa sannfærandi, 4-1 gegn Sviss og 7-1 gegn Ítalíu.

Leikurinn hefst kl. 13:00 að íslenskum tíma og verður í beinni útsendingu á Mycujoo síðu KSÍ.

Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir milliriðla EM 2020. Þar mætir Ísland Skotlandi, Hollandi og Rúmeníu í apríl.

Ísland og Þýskaland hafa mæst fimm sinnum í þessum aldursflokki og hafa Þjóðverjar unnið alla leikina.
Athugasemdir
banner
banner