Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. apríl 2020 15:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Crouch: Keane horfði á mig með viðbjóði
Mynd: Getty Images
Peter Crouch segir frá því þegar hann keypti sér Aston Martin bifreið í kjölfarið að Liverpool keypti hann til sín á sínum tíma.

Hann segir að Roy Keane hafi fengið hann til að skipta út bílnum innan við viku eftir kaupin.

„Ég var að spila með Liverpool og Englandi og ég hugsaði að nú væri tími á bílaskipti," sagði Crouch í útvarpsþætti á BBC. Crouch átti fyrir Renault Megane.

„Ég vissi samt að Aston væri ekki alveg ég. Það var basl að fá bílinn og hann passaði ekki við mig. Svo kom ég upp að hlið Roy Keane á ljósum, ég með sólgleraugun, rúðurnar niðri og höndina út í glugga."

„Þá leit ég á Roy og hann horfði á mig. Það hafa allir séð Roy horfa svona á eitthvað. Hann horfði á mig og ég hef aldrei verið minni í mér."

„Hann horfði á mig með hreinum viðbjóði og ég kann Roy að þakka að ég leit í spegilinn og seldi bílinn innan við viku síðar."

Athugasemdir
banner
banner