Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 09. maí 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raiola í þriggja mánaða bann
Mynd: Getty Images
Ofurumboðsmaðurinn Mino Raiola og bróðir hans Vincenzo hafa verið dæmdir í bann af ítölskum yfirvöldum. Mino fer í þriggja mánaða bann og Vincenzo í tveggja.

Ekki er ljóst hvers vegna bræðurnir voru dæmdir í bann en það voru samtök ítalskra umboðsmanna sem tilkynntu fregnirnar í dag. Þar er ekki gefið frekari útskýringar.

Ekki er langt síðan Raiola lenti uppi á kant við ítalska knattspyrnusambandið þegar hann sagði það vera „veikburða og tilgangslaust."

Paul Pogba, Mario Balotelli, Zlatan Ibrahimovic og Moise Kean eru meðal skjólstæðinga Mino Raiola.
Athugasemdir
banner
banner