Fotbolti.net
09.05.21 - 23:30
Brynjar Ingi Erluson

Skoraði og lenti á stönginni - „Ég er náttúrulega heiladauður"

Jacob Bergström

Jacob Bergström

Canon

Mynd: Heimasíða Mjällby

Sænski framherjinn Jacob Bergström var hetja Mjällby í 1-0 sigri liðsins á Östersund í sænsku úrvalsdeildinni í dag en það kostaði þó sitt að koma boltanum í netið.
Kadir Hodzic átti fína fyrirgjöf fyrir markið og þar mætti Bergström á ferðinni og stangaði boltann upp í samskeytin og lenti svo á stönginni í leiðinni. Hann var ekki langt frá því að fleygja markinu um koll enda þvílíkt högg.

Þetta reyndist eina mark leiksins en Bergström mætti í viðtal eftir leik sem var afar skrautlegt.

„Ég er náttúrlega heiladauður þannig ég keyrði bara á markið og ég hef ekki hugmynd um hvað gerðist. Kannski sló ég höfuðið í stöngina en þetta var fallegt. Ég elska að hafa þetta svona, að enda bókstaflega í markinu," sagði Bergström hress eftir leik en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Markið hjá Bergström
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.