Fotbolti.net
09.06.25 - 15:31
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Belfast

Eftirvænting og fullur völlur í Belfast

Íslenska liðið æfir þessa stundina á keppnisvellinum.

Íslenska liðið æfir þessa stundina á keppnisvellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Lengjan
Norður-írska landsliðið nýtur þess að fá öflugan stuðning frá sínu fólki á Windstor Park á morgun þegar liðið leikur vináttulandsleik gegn íslenska liðinu.

Leikvangurinn tekur 18.500 áhorfendur og verður uppselt á leikinn samkvæmt upplýsingum frá fótboltasambandi Norður-Írlands.

Það myndast oftast skemmtileg stemning í kringum heimaleiki Norður-Írlands og liðið fær stuðning í blíðu og stríðu.
Það rignir á íslenska landsliðið sem er að æfa á vellinum þegar þessi frétt er skrifuð. Allir leikmenn Íslands tóku þátt í æfingunni þær fimmtán mínútur sem fjölmiðlamenn fylgdust með. Þar er reyndar Jóhann Berg Guðmundsson ekki meðtalinn en hann fór ekki með liðinu til Belfast eftir að hafa orðið fyrir meiðslum á síðustu æfingu fyrir Skotlandsleikinn.

Sverrir Ingi Ingason fór meiddur af velli í sigrinum gegn Skotlandi á föstudag en hann tekur þátt í æfingunni sem nú er í gangi.

Norður-Írland er í 71. sæti heimslista FIFA en Ísland er í 74. sæti. Lengjan stuðulinn 2,00 á heimasigur, 2,96 á jafntefli og 3,19 á íslenskan sigur.

Leikur Norður-Írlands og Íslands hefst klukkan 18:45 á morgun að íslenskum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.