Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 14:22
Elvar Geir Magnússon
Illugi vill að KSÍ beiti sér gegn Infantino - „Rasismi og ekkert annað“
Gianni Infantino forseti FIFA og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ.
Gianni Infantino forseti FIFA og Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ.
Mynd: KSÍ
FIFA gaf Donald Trump sérstök friðarverðlaun.
FIFA gaf Donald Trump sérstök friðarverðlaun.
Mynd: EPA
Trump og Infantino.
Trump og Infantino.
Mynd: EPA
Alþjóðapólitíkin og ástandið í heiminum hefur heldur betur litað heimsmeistaramótið í fótbolta sem hefst á fimmtudag og fer að stærstum hluta fram í Bandaríkjunum.

Blaðamaðurinn Illugi Jökulsson hefur fjallað um HM og þátttökuþjóðirnar á HM í morgunútvarpi Rásar 1.

Í þættinum í morgun skaut hann að stjórnendum FIFA og kallaði eftir því að KSÍ myndi bregðast við og beita sér gegn ríkjandi forseta sambandsins, Gianni Infantino.

„Þegar þessu móti lýkur finnst mér þurfa að fara að hugleiða framhaldið. Mér finnst ekki til of mikils mælst að KSÍ fari að íhuga þátttöku sína í alþjóðafótboltanum undir FIFA. Þetta HM var komið of langt á veg þegar þessi ósköp skullu á en nú finnst mér hreinlega þurfa að gera eitthvað," segir Illugi.

„Við fórum fram á það við Ríkissjónvarpið að hætta að taka þátt í Eurovision vegna framferðir Ísraelsmanna og núna finnst mér að við þurfum að taka afstöðu til þess hvort við getum stutt núverandi stjórnvöld FIFA. Þau liggja hreinlega marflöt fyrir fótum stjórnvalda í Bandaríkjunum sem að augljóslega ástunda hugmyndafræði sem gengur í berhögg við allt sem það sem alþjóðafótboltinn þykist standa fyrir."

Flokkast sem rasismi og ekkert annað
„Það tók steininn úr í gær þegar Bandaríkjastjórn kom í veg fyrir að dómari frá Sómalíu fengi að koma inn í landið til að dæma leiki á HM. Þetta er víst frábær dómari. Það að banna honum að koma til landsins og þátttöku í mótinu flokkast sem rasismi og nákvæmlega ekkert annað. Það er viðbjóðslegt að horfa upp á það hvernig FIFA dillar rófunni framan í þessi rasísku ofbeldisöfl í Bandaríkjunum," segir Illugi.

Sómalíska dómaranum Omar Artan var meinað um inngöngu í Bandaríkin en hann átti að vera einn af dómurunum á heimsmeistaramótinu.

„Ef það er einhver dugur í íslenska fótboltasambandinu, sem ég veit nú ekki hvort er, það hefur ekki farið mikið fyrir því hingað til, þá finnst mér að það eigi að hafa frumkvæði að því að gera einhverskonar uppreisn gegn þessum Infantino forseta FIFA og öllum hans spilltu pótintátum. Mér finnst að við almenningur í landinu, þó fótboltasambandið sé einkasamband þá er það á ábyrgð allrar þjóðarinnar. Við getum alveg litið svo á að þetta sé á okkar ábyrgð og þar af leiðandi eru friðarverðlaun til Donald Trump líka á okkar ábyrgð."

„Mér finnst að KSÍ ætti að minnsta kosti að efna til umræðu innan FIFA um að losa sig við stjórnvöld sem hafa hagað sér svona gagnvart rasistunum sem nú ráða í Bandaríkjunum."
Slapp
banner
banner
banner