Omar Artan, sómalíski dómarinn sem átti að dæma á HM en var meinað inngöngu inn í Bandaríkin, segist hafa verið með öll rétt gögn og rétta vegabréfsáritun.
Artan var valinn besti dómari Afríku í fyrra og átti hann að verða fyrsti Sómali til að dæma á HM. Hann var tekinn af lista FIFA yfir dómara mótsins í gær eftir að hafa verið stöðvaður á flugvellinum í Miami.
Artan var valinn besti dómari Afríku í fyrra og átti hann að verða fyrsti Sómali til að dæma á HM. Hann var tekinn af lista FIFA yfir dómara mótsins í gær eftir að hafa verið stöðvaður á flugvellinum í Miami.
„Ég er mjög vonsvikinn. Ég er bara dómari sem var að reyna að lifa drauminn, stærsta draum lífs míns,“ sagði Artan við New York Times.
Hann segist hafa verið í ellefu klukkustunda yfirheyrslu hjá bandarískum yfirvöldum áður en hann var settur í klefa í nokkrar klukkustundir og síðan sendur aftur til Istanbúl.
Þá segir hann enn fremur hafa verið með alla pappíra og rétta vegabréfsáritun. Bandarísk yfirvöld hafa ekki gefið út ástæðu fyrir ákvörðuninni en Sómalía er á lista yfir ríki sem ferðabann Bandaríkjanna nær til.
Í desember sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að hann vildi ekki sómalíska innflytjendur í Bandaríkjunum og að þeir ættu að fara aftur þangað sem þeir komu frá. „Ég held að þeir hafi eitthvað á móti landinu mínu,“ bætti Artan við að lokum.
08.06.2026 22:35
FIFA staðfestir að sómalíski dómarinn verður ekki með á HM
09.06.2026 14:22
Illugi vill að KSÍ beiti sér gegn Infantino - „Rasismi og ekkert annað“
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

