Fotbolti.net
09.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Kewell kominn til Liverpool. (STAÐFEST)

Forráðamenn Liverpool staðfestu nú seinnipartinn í dag að félagið hafi gengið frá félagsskiptum Harry Kewell til liðsins frá Leeds United. Kewell gengur því til liðsins þrátt fyrir að svo hafi virst fyrr í vikunni sem snuðra hafi hlaupið á þráðinn. Kewell er talinn hafa skrifað undir fimm ára samning við félagið og er talinn fá 60 þúsund pund í vikulaun. Þar með er endi bundinn á sögusagnir um að Kewell sé á leið til Arsenal, Man Utd, Barcelona, Chelsea eða náttúrlega Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.