Fotbolti.net
09.07.12 - 11:28
Elvar Geir Magnússon

Keita samdi við kínverska félagið (Staðfest)

Keita samdi við kínverska félagið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kínverska félagið Dalian Aerbin hefur gert tveggja og hálfs árs samning við Seydou Keita sem kemur frá Barcelona.

Miðjumaðurinn Keita er 32 ára en hann var fjögur ár hjá Börsungum þar sem hann spilaði 119 leiki og vann marga titla. Keita kom til Barcelona frá Sevilla 2008.
„Seydou Keita, það var heiður að eyða þessum tveimur árum með þér. Ég óska þér alls hins besta vinur,\" skrifaði Javier Mascherano á Twitter.

Fleiri liðsfélagar hans kvöddu hann gegnum Twitter en Gerard Pique kallaði hann fyrirmynd innan og utan vallar.

Dalian Aerbin hefur verið að leggja meiri pening í leikmenn undanfarna mánuði en hjá félaginu er einnig brasilíski miðjumaðurinn Fábio Rochemback sem lék með Barcelona og Middlesbrough á árum áður.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.