09.07.12 - 14:14
Magnús Már Einarsson
Ji-Sung Park til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
QPR hefur keypt Suður-kóreska miðjumanninn Ji-Sung Park frá Manchester United.
QPR greiðir tvær milljónir punda fyrir Park en kaupverðið gæti síðar meir hækkað upp í fimm milljónir punda.

Park, sem er 31 árs gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við QPR í dag.
Park hefur leikið með Manchester United í sjö ár en hann kom frá hollenska liðinu PSV Eindhoven árið 2005.
Á ferli sínum hjá Manchester United spilaði Park samtals 205 leiki og skoraði 27 mörk en hann varð fjórum sinnum enskur meistari með liðinu.